Saxifraga juniperifolia

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
juniperifolia
Íslenskt nafn
Einisteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Skærgulur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
5-7 sm
Vaxtarlag
Sprotar trjákenndir neðst, sívalir, mynda fremur þéttar, stinnar þúfur.
Lýsing
Lauf 9-13 x 1-2,5 mm, bandlaga til bandlensulaga, mjókka í stinnan odd, jaðrar smátenntir neðst, myndar lítið sem ekkert af kalkútfellingum.Blómstönglar 3-6 sm, venjulega með mjög úfin hár, með 3-8 blóm í þéttum aflöngum klasa. Krónublöð 5-9 mm, öfugegglaga, stundum mjó-öfugegglaga, gul.
Uppruni
Búlgaría, NA Tyrkland, Kákasus.
Harka
6
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í steinbeð.
Reynsla
Ágætis steinhæðarplanta, ef til vill kröftugri í hálfskugga mót norði eða austri. Stutt reynsla hér, í sólreit sem stendur (frá SG) en hefur reynst þokkalega harðgerð hjá öðrum ræktendum (t.d. ÓBG). Ekki í Lystigarðinum 2015.