Saxifraga rosacea

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
rosacea
Íslenskt nafn
Toppasteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
15-25 sm
Vaxtarlag
Myndar fremur þéttar eða gisnar þúfur eða þunnar breiður.
Lýsing
Hvirfingarlauf 0,6-2,5 sm (ásamt laufleggnum), leggurinn lengri eða styttri en blaðkan. Blaðka skiptist til hálfs í 3-5 aðalflipa sem skiptast aftur í allt að 11 breiðsporbaugótta til bandlaga-aflanga hluta, hlutarnir eru snubbóttir, yddir eða broddyddir. Blaðkan er ekki rákótt á efra borði. Blómstöngull 4-25 sm með 2-5 blóm í gisnum skúf. Krónublöðin 6-10 mm, öfugegglaga, hreinhvít.
Uppruni
NV & M Evrópa.
Harka
6
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í fjölæingabeð.
Reynsla
Nokkuð breytileg tegund. Víða í ræktun og fjölmörg eintök til í garðinum
Yrki og undirteg.
ssp. rosacea. Flipar laufa breytilegir ekki með stuttan brodd, venulega breiðir. Hár yfirleitt ekki kirtilhár. Heimkynni: M & NV Evrópa.ssp. sponhemica (Gmelin) D.A Webb. Laufhlutar stuttyddir, mjóaflangir. Hár yfirleitt ekki kirtilhár. Heimkynni: M Evrópa.