Saxifraga umbrosa

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
umbrosa
Íslenskt nafn
Skuggasteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt, sígræn.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur/fagurrauðar doppur og gulir blettir í grunninn.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
Allt að 35 sm
Vaxtarlag
Sígrænn fjölæringur með blaðhvirfingar sem vaxa upp af jarðlægum sprotum, myndar lágar þúfur með tímanum.
Lýsing
Laufblaðkan 1,5-3 x 1-2 sm, aflöng-oddbaugótt, stundum því sem næst öfugegglaga, venjulega hárlaus. Jaðrar með 5-10 grunnar tennur, bogtenntur, tennurnar vita fram á við á hvorri hlið. Gegnsær kantur 0,2-0,3 mm breiður. Laufleggir yfirleitt 1/3-1/2 x lengd blöðkunnar, flatir með þéttkirtilhærða jaðra. Blómstilkar allt að 35 sm háir. Krónublöð um það bil 4 mm, breiðoddbaugótt, mjókka í stutta nögl, hvít með fagurrauðar doppur í miðjunni og 2 gula bletti við grunninn.
Uppruni
Pýreneafjöll.
Harka
7
Heimildir
= 1,2, encyclopaedia.alpinegardensociety.net/plants/Saxifraga/urbium
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, sem þekjuplanta undir trjágróður og víðar.
Reynsla
Harðgerð jurt. Hefur vaxið mjög lengi í görðum um allt land.
Yrki og undirteg.
var. primuloides 'Elliott's Variety' myndar þéttar þyrpingar, blómstrar síðla vors eða snemmsumars, blómin bleik á rauðleitum 20 sm háum stilkum (Köhlein, Saxifragas). 'Elliott's Variety' er nú undir nafninu ´Clarence Elliott'. ---Form nefnt 'Primuloides' er mjög snotur jurt, með lítil lauf, þetta form er að finna villt í Pýrenafjöllum.