Saxifraga x eudoxiana

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
x eudoxiana
Yrki form
'Haagii'
Höf.
Sünderman 1908
Íslenskt nafn
Þekjusteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær, sígræn jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Djúpgullgulur.
Blómgunartími
Apríl-maí.
Hæð
6-8 sm
Vaxtarlag
'Haagi' er mjög gamall, sterkbyggður blendingur, grófgerður, vex hratt og er blómviljugur, myndar fljótt þéttar, grænar þúfur, sem eru góðar í klettasprungur og geta orðið 40 sm breiðar.(Saxifraga ferdinandi-coburgii x Saxifraga sancta)
Lýsing
Blómstönglar eru 6-8 sm háir með 4-5 blóm með mjó krónublöð með djúpgullgulan blæ. Minnir á blomin á S. ferdinandi-coburgii.
Uppruni
Yrki.
Harka
3
Heimildir
= 1,2, Köhlein: Saxifrages.
Fjölgun
Skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beðkanta. Gæti verið fallegur í beði með skógarblámategundum (Hepatica species).
Reynsla
Engin.