Saxifraga x geum

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
x geum
Íslenskt nafn
Skógarsteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt, sígræn.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur / rauðar+gular dröfnur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Náttúrulegur blendingur skuggasteinbrjóts og dúnsteinbrjóts (S. umbrosa x S. hirsuta) skv. RHS og EGF. Er frábrugðin foreldrunum að því leyti að laufleggurinn er lengri en aflöng blaðkan, með hár aðeins á jöðrum leggsins og aðeins fáein, mjög strjál hár eru á efra borði blöðkunnar, jaðrar eru bogtenntir.blaðstilkar hærðir
Lýsing
Lauf nýrlaga, bogtennt, rauðleit á neðra borði, þverstýfð í grunninn. Blóm um það bil 20 talsins í samsettum klasa.
Uppruni
Pyreneafjöll, nátturulegur blendingur.
Harka
3
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í beð, í þekju, þekur vel.
Reynsla
Harðgerð og góð garðplanta sem hefur verið lengi í ræktun í Lystigarðinum. (F1 - frá 1992)