Scilla autumnalis

Ættkvísl
Scilla
Nafn
autumnalis
Íslenskt nafn
Hauststjörnulilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölær laukur. (8)
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Lillalitur til bleikur.
Blómgunartími
September.
Hæð
10-30 sm
Vaxtarlag
Laukar 1,5-3 sm í þvermál, egglaga, með brúnt eða bleiklitað hýði, stöku sinnum með fáein himnukennd hreistur.
Lýsing
Blómleggir 1-3, 5-30 sm, snarpur. Lauf 5-12, 2-18 sm x 1-2 m, með gróp á efra borði, næstum sívalur, koma oftast að blómgun lokinni. Blómin 5-25, í stoðblaðalausum, opnum klasa sem lengist þegar aldinin þroskast, aldinleggur 3-10 mm, uppsveigðir eða útstæðir. Blómhlífarblöð 3-5 mm, útstæð, lillalit til bleik. Aldin egglaga til hnöttótt, hýðið ógreinilega þríhyrnd, allt að 4 mm með 2 svört fínlega snörp fræ í hverju hólfi, allt að 2 x 1 mm.
Uppruni
S, V & M Evrópa, NV Afríka-S Rússland.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Hliðalaukar, sáning, laukar lagðir í september á 8-10 sm dýpi.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, sem undirgróður, í blómaengi, ígrasflatir.
Reynsla
Harðgerð planta sem ætti að skýla á erfiðum stöðum. Ekki í Lystigarðinum.