Scilla litardieri

Ættkvísl
Scilla
Nafn
litardieri
Íslenskt nafn
Engjastjörnulilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Samheiti
S. pratensis Waldst. & Kit.; S. ametystina Visiani
Lífsform
Laukur, fjölær
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Bleikleitur eða fjólublár.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Laukur 1,5 sm í þvermál, egglaga, laukhýði brúnt. Lauf 3-6 að tölu, 25-30 sm × 4-8 mm bandlaga, koma um leið og blómið.
Lýsing
Blómstönglar venjulega stakir, stöku sinnum 2-3 saman, 10-25 sm. Blóm 15-35 að tölu í mjóum, keilulaga 5-15 sm löngum klasa. Stoðblöð um 1 sm, egglaga. Blómleggir 8-12 mm fölfjólubláir. Blómhlífarblöð 4-6 mm, egglaga, bleikleit eða bláfjólublá. Fræflar 3-5 mm, frjóþræðir fölbláir, frjóhnappar djúpfjólubláir. Eggleg með 3 eða 4 eggbú í hverju hólfi. Hýði um 4 mm í þvermál. Fræ brún eða svört allt að 3 × 1-2 mm.
Uppruni
Júgóslavía.
Harka
6
Heimildir
= 1, 2
Fjölgun
Hliðalaukar, sáning, laukar lagðir í september á 8-10 sm dýpi.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, sem undirgróður, í blómaengi, í grasflatir.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1990 og gróðursett í beð 1992, ein sem sáð var til 1999 og gróðursett í beð 2005 og ein sem kom sem laukur 2000, allar þrífsast vel en eru nokkuð seinar til. Engjastjörnuliljan hefur einnig reynst vel í Gasagarði Reykjavíkur. Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.