Scilla peruviana

Ættkvísl
Scilla
Nafn
peruviana
Íslenskt nafn
Inkastjörnulilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölær laukur. (8)
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Djúpfjólublár.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
10-15 sm
Vaxtarlag
Laukur 6-8 sm í þvermál, egglaga, laukhýðið með ullarkennt ytra lag. Lauf 9-15 að tölu, stundum færri, 40-60 × 1-4 sm, bandlaga til lensulaga í þéttum hvirfingum, stundum randhærð.
Lýsing
Blómstönglar stakir, sjaldan 2 saman, 15-25 sm, stinnir. Blóm 40-100 í breiðkeilulaga, 5-20 sm löngum klasa. Neðri stoðblöðin 3-8 sm, sýllaga, pappírskennd. Neðri blómleggir 3-5 sm, grænleitir lengjast og verða 6-10 sm þegar aldinið hefur þroskast. Blómhlífarblöð 8-15 mm, oddbaugótt, djúpfjólublá eða hvít. Fræflar lensulaga oddbaugóttir, fölbláir, frjóhnappar gulir. Eggleg næstum hnúðótt. Hýði egglaga, langydd, með 3 eða 4 fræ í hólfi.
Uppruni
SV Evrópa, NV Afríka.
Harka
H4
Heimildir
= 2
Fjölgun
Hliðarlaukar, sáning, laukar lagðir í september á 8-10 sm dýpi.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í breiður, í blómaengi, í grasflatir.
Reynsla
Harðgerð, hentar síður í steinhæðir og beð vegna þess hve plantan beiðist hratt út. Ekki í Lystigarðinum.