Scutellaria przewalskii

Ættkvísl
Scutellaria
Nafn
przewalskii
Íslenskt nafn
Kögurskjaldberi
Ætt
Varablómaætt (Lamiaceae).
Lífsform
Fjölær hálfrunni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur með purpura lit á krónutungunni.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
6- 22 sm hár.
Vaxtarlag
Fjölær hálfrunni. Jarðstönglar trékenndir, allt að 1,5 sm í þvermál, bugðóttir. Stönglar purpuralitir, margir, 6-22 sm háir, uppsveigðir eða hálf-jarðlægir, um 1,5 mm í þvermál, litið eitt smá-lóhærð.
Lýsing
Laufleggir (1,5)5-10(-14) mm, flatur og með mjóan væng, lóhærðir, laufblaðkan egglaga til oddbaugótt, (0,6-)1,2-2,2 x (0,4-)0,8-1,5(-2,2) sm, Lítið eitt dúnhærð á efra borði, grálóhærð á neðra borði, hliðaræðastrengir áberandi djúplægir á efra borði, grunnur næstum þverstýfður, jaðar 4-7 fjaðurskiptur, hvassydd. flipar minna á fingur, 2-6(-8) x um 1 mm. Klasar 2,5-5 sm, allt að 7 sm þegar aldinin eru þroskuð. Stoðblöð purpura efst, breið-egglaga, 8-)12-15 sm x um 1 mm, himnukennd, hvassydd til langydd, langhærð stundum með stuttanlegg, kirtilhár innanum hin. Blómleggur um 5 mm langhræður. Bikar um 2 mm, langhærður á ytra borði, með leggjuð kirtilhár, um 4 mm þegar aldinin eru þroskuð, skjöldur um 1,5 mm, um 4 mm þegar aldinin eru þroskuð. Krónan er gul eða gul með purpuralit á krónutungunni, 2,5-3,3 sm, mjúkhærð á ytra borði, með stutt kirtilhár á legg. Krónupípan með sekk við grunninn, um 1,5 mm breið í miðjunni, víkkar smámsaman upp á við, allt að 7 mm breið í ginið. miðflipi á efri vör breiðegglaga, framjöðruð í oddinn, hliðaflipar egglaga. Smáhnetur þríhyrndar, egglaga, um 1,5 x 1 mm, þétt grálóhærð, með bungu að 1/3 við grunnin á efra borði.
Uppruni
Ganzu, Xinjiang, Kirgystan.
Heimildir
= http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=129910&key_no=8
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í beð með fjölærum jurtum.
Reynsla
Hefur lifað frá 1991 í Lystigarðinum og þrifist vel.