Sedum aizoon

Ættkvísl
Sedum
Nafn
aizoon
Íslenskt nafn
Gullhnoðri
Ætt
Hnoðraætt (Crassulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gullgulur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
30-40 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 30-40 sm há. Rætur minna á gulrætur. Stönglar fáir, uppréttir, yfirleitt ógreindir.
Lýsing
Kaufin 50-80 x 18-25 mm, stakstæð, aflöng-lensulaga, legglaus, mðrifið áberandi á neðra borði, jaðrar gróf og óreglulega tenntir. Blómskipunin í þéttum, flötum, samsetum skúf, blómin mörg. Bikarblöð 5, mjókka ó odd. Krónublöðin 7-10 mm, 5 talsins, mjó, oddbaugótt til lensulaga, gullgul. Fræflar 10 talsins.
Uppruni
Asía, hefur numið land í N og M Evrópu.
Harka
7
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð, í hleðslur, í kanta.
Reynsla
Harðgerður og fallegur sérstaklega S. a. ssp. maximowiczii (dökkgrænn).
Yrki og undirteg.
ssp. maximowiczii er stærri með dökkgræn blöð, rauðleita stöngla og dökkgul blóm í stórri og þéttri blómskipum. 'Aurantiacum' fallegt yrki og harðgert.