Sorbus anglica

Ættkvísl
Sorbus
Nafn
anglica
Íslenskt nafn
Englareynir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni eða lítið tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
3-4(-8) m.
Vaxtarhraði
Hægur.
Vaxtarlag
Meðalstór runni eða lítið runnkennt tré.
Lýsing
Lauf heil, leðurkennd, nær öfugegglaga, með grunnum skerðingum og tennt, gljáandi græn á efra borði en grádúnhærð á því neðra. Haustlitir gullbrúnir. Blóm hvít með bleikum fræflum. Aldin hnöttótt, rauðbrúnleit-fagurrauð.
Uppruni
Bretland (Wales).
Heimildir
2
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í blönduð trjá og runnabeð.
Reynsla
Mjög sjaldgæf tegund sem er í útrýmingarhættu, aðeins fundin í Bretlandi og þá helst í Wales. Þrífst best í frjóum vel framræstum jarðvegi á sólríkum stað. Þarf helst kalkríkan jarðveg.Sorbus anglica 20060817 er í uppeldi. Kom sem nr. 451 Vilnius HBU 2005. Hætt er við að hún sé heldur viðkvæm nema á allra bestu stöðum.