Sorbus aucuparia

Ættkvísl
Sorbus
Nafn
aucuparia
Íslenskt nafn
Reyniviður
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rjómahvítur.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
10-14 m
Vaxtarlag
Lítið eða meðalstórt tré, yfirleitt einstofna með hvelfda krónu. Verður 60-140 ára eftir aðstæðum á hverjum stað. Greinar gráar og uppréttar á ungum trjám en síðar útstæðar. Árssprotar grábrúnir og hærðir í fyrstu en verða nær hárlausir með aldrinum. Börkur þunnur, sléttur, ljósgrár-dökkgrár með láréttum barkaropum og lyktar illa. Brumin dökk, meira eða minna loðin, sérstaklega á endum bruma. Endabrum áberandi stærst og loðnast. Tré af íslenskum uppruna eru að jafnaði með uppstæðar greinar.
Lýsing
Laufin stór, stakfjöðruð, 10-20 sm á lengd með 6-8 smáblaðapör. Endalaufið er ekki áberandi stærra en hin. Smáblöð 2-6 sm á lengd, mattgræn og hárlaus á efra borði en gishærð til dúnhærð og grágræn á því neðra, lang-lenulaga, ydd og sagtennt.Blómin rjómahvít í stórum hálfsveipum. Blómin um 10 mm í þvermál, þefill, með 5 þríhyrnd, hvíthærð bikarblöð, fimm krónublöð og marga fræfla sem eru jafnlangir krónublöðum. Ein fræva í lítillega hærðu egglegi með 3-4 stílum.Aldin rauðgul, rauð eða dökkrauð, kúlulaga, 8-10 mm í þvermál. Fræ oddbaugótt, ljósbrún og um 4 mm á lengd fullþroskað.Gulir eða rauðbrúnir og jafnvel rauðir haustlitir mismunandi áberandi frá ári til árs.
Uppruni
Evrópa - L. Asía, Síbería.
Sjúkdómar
Rreyniáta (Cytispora rubescens).
Harka
2
Heimildir
1
Fjölgun
Haustsáning, forkælið fræin, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Skjólbelti, í þyrpingar, sem stakstæð tré, í raðir og jafnvel í limgerði, verður 60-120 ára.
Reynsla
Harðgert tré, þarf mikinn áburð. Grisja þarf krónuna, klippa rótarskot. Vex villtur hér og þar um landið. Mjög stórt útbreiðslusvæði um tempraða belti Evrasíu og Litlu-Asíu.
Yrki og undirteg.
Fjölmörg garðaafbrigði eða yrki, nokkur þeirra í ræktun í garðinum.Yrki t.d.: 'Edulis' er með æt ber, ekki beisk á bragðið og því hentugur í sultur og hlaup, hraðvaxta og mjög harðgert yrki. Stærri lauf og breiðari smálauf en á aðaltegund, tennt aðallega í endann. Uppruni frá því um 1800.'Fastigiata' er hægvaxta runni eða lágvaxið tré, nær súlulaga með uppréttum greinum (stofni). Verður kannski ekki nema 4-5 m hérlendis. Lauf stór með 11-15 dökkgrænum smáblöðum. Aldin gljáandi rauð, stór og fjölmörg saman. AM 1924.'Dirkenii' - lauf gul á unga aldri, en verða síðar gulgræn. Fyrst á markaði um 1880.'Fastigiata' er með stíf upprétt króna, fremur hægvaxta.'Pendula' er með slútandi/hangandi greinar.'Rossica Major' - eitt allra besta yrkið og víða notað sem götutré erlendis. Uppréttur vaxtarlag - endanleg hæð um 10 m. 'Xanthocarpa' er með skærgul aldin.