Sorbus frutescens

Ættkvísl
Sorbus
Nafn
frutescens
Íslenskt nafn
Koparreynir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
(Sorbus fruticosa).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
Allt að 2,5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, allt að 2,5 m á hæð, yfirleitt margstofna frá grunni og skríður ekki með neðanjarðarrenglum. Ársprotar súkkulaðibrúnir. Brumin egglaga-keilulaga, svartleit með hvítum hárum í toppinn og á jöðrum brumhlífa, allt að 10 mm á lengd.
Lýsing
Laufin allt að 18 sm með (7-)11-12(-14) smáblaðapörum. Smáblöð allt að (10)15-24(-32) mm á lengd og (5-)7-8(-11) mm á breidd, egglaga-lensulaga, gróftennt nær því að grunni, dökk græn á efra borði en aðeins ljósari á því neðra og ekki nöbbótt á neðra borði. Blómskipunin lotinn hálfsveipur. Aldin hvít utan þess að í vikunum milli bikarflipanna vottar fyrir bleikri slikju, allt að 9,5 x 12 mm. Bikarblöðin kjötkennd aðeins neðan til. Stílar að 2,75 mm og næstum samvaxnir við grunn. Frævur 5, undirsætnar, oddarnir samvaxnir, myndar keilulaga dæld innan dældarinnar í bikarnum. Fræin rauðbrún, allt að 3 x 1,75 mm, perulaga, eggmunninn dálítið sveigður til hliðar. Fjórlitna smátegund sem fjölgar sér með geldæxlun. (2n=68). Auðþekkt frá öðrum tegundum með stakfjöðruð blöð og hvít aldin á dökkum brumum með hvítum hárum (aðrar tegundir yfirleitt með rauðbrún brum með rauðbrúnum eða ljósbrúnum hárum). Önnur einkenni er m.a. hinn granni en súkkulaðibrúni ársproti.(McAll.)
Uppruni
Tíbet, Kína.
Harka
7
Heimildir
1, 15
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í skrautbeð. Plöntur í ræktun eru þó af óþekktum uppruna, þ.e. ekki er vitað hvar fyrstu plöntunum var safnað.
Reynsla
Mjög harðgerð og var lengi í ræktun hérlendis undir S. koehneana. Breytt nú nýverið eftir rannsóknir dr. McAll. á reyniættkvíslinni.Mörg, bæði gömul (B7-13) og ný eintök eru í ræktun. Mjög harðgerð tegund sem er víða í görðum landsmanna. Helsti gallinn á henni er að henni er hætt við sveppasýkinu (sérstaklega þegar hún eldist) en ekki hefur þó verið úr því skorið um hvaða svepp er að ræða.