Sorbus koehneana

Ættkvísl
Sorbus
Nafn
koehneana
Íslenskt nafn
Postulínsreynir*
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni eða lítið tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
3-5 m
Vaxtarlag
Stórvaxinn runni eða lítið tré, verður allt að 5 m hátt í heimkynnum sínum. Greinar grannar, dökkrauðar eða súkkulaðibrúnar. Brumin egg-keilulaga, rauð-dökkrauð, allt að 7-10 mm á lengd með rauðbrúnum til hvítum hárum í toppinn.
Lýsing
Lauf stakfjöðruð, allt að 15(-21) sm á lengd með 9-11 laufblaðapörum. Smáblöðin að 19 x 8 mm, oddbaugótt-aflöng, hvasstennt að minnsta kosti ¾ af lengdinni, ekki nöbbótt á neðra borði. Blómin í álútum sveip. Blómin hvít um 10 mm í þvermál. Aldin hvít og oft meira eða minna með bleikri slikju við grunn, oftast 7,5 x 7,5 mm (sjaldan 10 x 10 mm) meira og minna eplalaga. Fræ dökkbrún, að 2,75 x 1,75mm og allt að 5 í hverju aldini. (McAll.)
Uppruni
Kína (Shensi, Kansu, Honan, Jubei og Sichuan).
Heimildir
15, www.rareplants.es/shop/product.asp?P_ID=10347
Fjölgun
Haustsáning.
Notkun/nytjar
Í trjá- og runnabeð.
Reynsla
Hvort þessi tegund er í ræktun er ekki vitað fyrir víst. Sá S. koehneana sem var í garðinum frá fyrri tíð hefur nú verið nefndur S. frutescens (nafnaruglingur). Hann nefnist ekki koparreynir lengur en koparreyniheitið fylgir nú S. frutescens (sjá lýsingu á honum og myndir).