Sorbus minima

Ættkvísl
Sorbus
Nafn
minima
Íslenskt nafn
Hrísreynir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Pyrus minima Ley
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
-3 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, þrílitna runni allt að 3 m hár, greinar fáar, fíngerðar.
Lýsing
Lauf 4-8 sm, oddbaugótt til egglaga, bogadregin eða fleyglaga við grunninn, grunn-flipótt, tennt, æðastrengir í 7-9 pörum, mattgræn, með litla, gráa lóhæringu á neðra borði. Blómin í litlum, bogadregnum þyrpingum. Aldin 6-8, hálfhnöttótt, skarlatsrauð, smádoppótt. (2n=51).
Uppruni
England, Wales.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning að hausti, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í trjá og runnabeð. Heimkynni: V-Bretland, grýtt land, yfirleitt á kalksteinsbergi.
Reynsla
LA 81226 í J6-A03, gróðursett 1991, kom sem nr. 190 frá Uppsala HBU 1979.Dálítið sein til á vorin en kelur lítið sem ekkert. Reyndar aðeins fyrstu árin en síðust 8 árin ekkert. Harðgerð tegund og auðræktuð.