Sorbus poteriifolia

Ættkvísl
Sorbus
Nafn
poteriifolia
Íslenskt nafn
Fjaðurreynir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Pyrus foliolosa Wallich var. subglabra Cardot; P. reducta W. W. Smith (1930), not Diels (1912).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
30 sm
Vaxtarlag
Dvergvaxinn, skriðull runni allt að 30 sm hár. Mikill vöxtur er aðeins neðanjarðar.
Lýsing
Brum eru keilulaga, rauð, með rauðbrún hár í oddinn og á jöðrum burmhlífanna. Laufin yfirleitt 4-7 sm með 4-6 pör af leggstuttum smálaufum. Smálauf allt að 14 x 8 mm, hvasstennt, ekki nöbbótt á neðra borði. Blómin bleikleit, bikarblöð með greinilega miðtaug, ekki kjötkennd. Krónuflipar áberandi bleikari meðfram miðrifinu. Fræflar oftast 10 talsins. Eggleg undirsætið. Aldin mattrauð í fyrstu, verða hvít þegar þau eru fullþroska, allt að 8,25 x 9,5 mm. Frævur 3-5, undirsætin, oddurinn samvaxinn í dæld í bikarnum. Stílar 3-5, um 2 mm langir, meira eða minna samvaxnir við grunninn, hárlausir. Fjórlitna smátegund með geldæxlun. (2n=68).
Uppruni
Kína (Upper Burma, Yunnan), Indland (Assam).
Heimildir
15
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beðkanta.
Reynsla
LA 990873 í uppeldi. Er í R03 E 2007. Kom sem nr. 664 frá Reykjavík HB 1998-1999. Ekki marktæk reynsla enn sem komið er.