Sorbus x hostii

Ættkvísl
Sorbus
Nafn
x hostii
Íslenskt nafn
Úlfareynir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni-lítið tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
2-4 m
Vaxtarlag
Blendingur munkareynis (S. mougeotii) og gljáreynis (Sorbus chamaemespilus). Lauffellandi runni allt að 4 m hár. Líkist S mougeotti hvð lauf snertir og vaxtarlag.
Lýsing
Laufin eru lengri en 10 sm, mjó-aflöng, hvass tvísagtennt, með grunna flipa, græn ofan en grá neðan. Blómin í 6-8 sm hálfsveipum, bleik, minna á gljáreyni (S chamaemespilus). Aldin egglaga, rauð-appelsínugul að haustinu.
Uppruni
Evrópa (Alpafjöll, Júrafjöll).
Harka
6
Heimildir
1, www.easthants.gov.uk/,
Fjölgun
Sumargræðlingar, haustsáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæð tré, í blönduð trjá- og runnabeð.
Reynsla
Sorbus x hostii LA 78261 í B7-05, gróðurset 1984 frá Jóhanni Pálss. 1978. Flottasti úlfareynirinn í garðinum en þeir eru allnokkrir. Hefur aldrei kalið neitt (K=0 yfir 10 ára tímabil). Mjög gamall í ræktun, bæði hér í garðinum og á landsvísu. Þau eintök sem eru í garðinum hafa staðið sig með prýði, kelur lítið sem ekkert og bera blóm og ber árlega.