Spiraea × billardii

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
× billardii
Íslenskt nafn
Úlfakvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól, (hálfskuggi).
Blómalitur
Skærbleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
1,5-2 m
Vaxtarlag
Uppréttar greinar, nauðalíkur dögglingkvisti, mikil rótarskot, árssprotar fínhærðir og rauðleitir í fyrstu, seinna brúnir og að mestu hárlausir.
Lýsing
Lauffellandi runni, allt að 2 m hár. Líkari dögglingskvistinum en víðikvistinum, en laufin eru ydd bæði í toppinn og grunninn, dúnhærð, gráleit á neðra borði. Smágreinar brúnar, dúnhærðar. Lauf 5-8 sm, aflöng-lensulaga, ydd í báða enda, djúp og hvass sagtennt í efsta 2/3 hlutanum, grágræn og lóhærð á neðra borði. Blómin eru skærbleik, í mjóum, þéttum, smá-lóhærðum skúf, sem er allt að 20 sm hár. Fræflarnir tvisvar sinnum lengri en krónublöðin. Aldin hárlaus, langæir stílarnir eru útstæðir.
Uppruni
Garðablendingur (S. douglasii Hook. x S. salicifolia L.).
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar, rótarsprotar, skifting.
Notkun/nytjar
Þyrpingar, óklippt limgerði, stakstæð, beð, kanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til einn gamall runni og tvær plöntur sem sáð var til 2008 og eru í uppeldi.Harðgerð planta, sem þolir vel klippingu og ráðlegt er að klippa hann vel niður á hverju vori og fækka rótarskotum. Líkist mjög dögglingskvisti en dögglingskvistur er með lauf bogadregin í báða enda, dekkri blóm og þéttari hæringu á neðra borði laufa (víðikvistur er með hárlaus blöð með fleyglaga grunn en bogadregin í oddinn).
Yrki og undirteg.
Spiraea x billiardii 'Alba' er með hvít blóm.