Spiraea × cinerea

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
× cinerea
Yrki form
'Grefsheim'
Íslenskt nafn
Grefsheimkvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
1-1,5 m
Vaxtarlag
Fínlegar, bogsveigðar greinar, árssprotar grannir, allt að 60 cm langir og vaxa í smáhlykkjum, með grátt hár fram á haust.
Lýsing
Lauffellandi runni með drúpandi greinar. Lauf lensulaga, ydd, allt að 2,5 × 0,7 sm, mjúk-sægræn, dúnhærð á neðra borði. Blómin hvít, ríkuleg, á stuttum stilkum, 6 saman, blómstra snemma erlendis.
Uppruni
Yrki.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Stórar steinhæðir, sem stakstæðir runnar og í beð og kanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær aðkeyptar plöntur sem eru um 1 m háar, önnur er frá 1995 og hin 1996. Báðar plönturnar hafa kalið dálítið gegnum árin, eru seinar til að blómstra.Grefsheimkvisturinn er nokkuð víða í ræktun hérlendis. Þarf skjólgóðan og sólríkan vaxtarstað, frýs stundum grænn á haustin og kelur meira en aðaltegundin. Blómgast ekki árvisst. Líkist brúðarkvist (S. x arguta) en brúðarkvisturinn er með styttri blöð sem eru alltaf tennt í endann, hærð í fyrstu en alveg hárlaus er líður á sumarið.