Spiraea densiflora

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
densiflora
Ssp./var
ssp. splendens
Höfundur undirteg.
(Baumann ex K. Koch) Abrams
Íslenskt nafn
Dreyrakvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Dökk rósbleikur.
Blómgunartími
Ágúst - september.
Hæð
-1,2 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttir runni, mun stærri og grófgerðari en aðaltegundin, árssprotar dálítið hærðir, allt að 1,2 m hár, ungar smágreinar eru smádúnhærðar.
Lýsing
Lauf egglaga til oddbaugótt-aflöng, stöku sinnum ydd, sagtennt eða tvísagtennt, tennur grannar, laufin heilrend að grunni. Blómin í fín-smádúnhærðum eða næstum hárlausum hálfsveipum, bikarblöðin þríhyrnd, ydd.
Uppruni
Bandaríkin (Oregon til Kaliforníu).
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumargræðlingar, rótskeyttar greinar, sáning.
Notkun/nytjar
Í stórar steinhæðir, í kanta, í blönduð runnabeð, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1992, gróðursett í beð 1995, kelur lítið, blómstrar.