Spiraea densiflora

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
densiflora
Yrki form
Hagi
Íslenskt nafn
Dreyrakvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
60 sm
Vaxtarlag
Uppréttur, lágvaxinn runni með sívalar rauðbrúnar og hárlausar og hárlausar greinar.
Lýsing
Hagi er með rauðari bleik blóm og grænni blöð en Pýri og hlutfall milli lengdar og breiddar jafnara. 'Hagi' er með blóm í minna hvelfdum sveip enPýri sem er með blágrænni blöð og ívið lengri en þau eru breið, en blómskipunin á það til að vera mjög hvelfd, eiginlega frekar pýramídalaga. Pýri er með hreinni bleikan lit en Hagi.
Uppruni
NV Bandaríkin.
Harka
6
Heimildir
Ólafur S. Njálsson 2012.
Fjölgun
Sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beðkanta, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein aðkeypt planta frá 1995, Spiraea densiflora Hagi, sem er falleg og blómrík en kelur dálítið flest ár.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:´Hagi er kvæmi eða yrki sem var valið úr plöntum af dreyrakvist í gróðrarstöðinni Nátthaga, plönturnar komu upp af fræi. Pýri er annað kvæmi eða yrki valið úr sama plöntuhóp.