Spiraea gemmata

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
gemmata
Íslenskt nafn
Kínakvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Síðsumars.
Hæð
Allt að 2,5 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 2,5 m hár. Greinar kantaðar, bogsveigðar, grannar, ryðrauðar, hárlausar. Greindur frá S. mollifolia (sem er mjög líkur) á hárlausum greinum og ekki silkihærðum laufum og greinum.
Lýsing
Laufin allt að 2,5x0,85 sm, mjó-aflöng, snögg-langydd, oddur oftast snubbóttur, heilrend, stundum 3-tennt, grunnur fleyglaga, græn, hárlaus, laufleggir stuttir. Blóm allt að 8 mm í þvermál, hvít, blómskipunin allt að 2,5 sm í þvermál í 2-6 blóma sveipum, blómleggur, grannur, bikarblöð útstæð, krónublöð hálfkringlótt, lengri en fræflarnir. Aldin hárlaus.
Uppruni
NV Kína.
Harka
Z5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem kom úr gróðrarstöð 1989 og gróðursett í beð það sama ár og önnur sem kom úr gróðrarstöð 1991 og var gróðursett í beð 1991, báðar kala dálítið.