Spiraea japonica

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
japonica
Íslenskt nafn
Japanskvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Spiraea fritschiana C.K.Schneid.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Rósbleikur til skarlatsrauður.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
-1,5 m
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, allt að 1,5 m hár. Greinar stinnar uppréttar, greinast lítið, oftast sívalar, stundum hliðflatar og kantaðar, hárlausar eða dúnhærðar í fyrstu.
Lýsing
Lauf 2-8 × 0,75-4 sm, lensulaga til egglaga, ydd til odddregin, bogadregin til mjófleyglaga við grunninn, hvass sagtennt, hárlaus til dúnhærð. Blóm 6-9,5 mm í þvermál, rósbleik til skarlatsrauð, sjaldan hvít, mörg saman í flötum, stundum stutt-dúnhærðum og endastæðum hálfsveip, sem er allt að 30 sm í þvermál. Blómskipanirnar eru í efstu lauföxlunum. Blómskipunarleggur hárlaus eða ullhærður. Bikarblöð upprétt við blómgun, seinna skástæð, tígullaga, ydd. Krónublöð styttri en fræflarnir. Hýði hárlaus, nema á saumunum, upprétt eða dálítið skástæð.
Uppruni
Japan, Kína.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumargræðlingar, skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæður runni, í fjölæringabeð, ef til vill í raðir, í kanta, sem óklippt limgerði.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1989, kelur nokkuð öll ár og blómstrar mikið.Meðalharðgerður-harðgerður, hægvaxta, má klippa alveg niður árlega.
Yrki og undirteg.
Fjölmörg yrki eru í ræktun svo sem 'Macrophylla', 'Crispa', 'Froebelii', 'Goldflame', 'Limemound', 'Little Princess', 'Snowmound' og fleiri.