Spiraea longigemmis

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
longigemmis
Íslenskt nafn
Töfrakvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
- 1,5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni allt að 1,5 m hár. Greinarnar eru uppsveigðar til útstæðar, kantaðar, hárlausar. Brumin eru löng og flöt.
Lýsing
Laufin allt að 3-7.5 × 1,25-3 sm, egglaga-lensulaga til aflöng, ydd og grunnur þeirra fleyglaga. Þau eru ljósgræn og hárlaus ofan, tennur með kirtilodda, bláleit og dúnhærð á æðastrengjum á neðraborði þegar þau eru ung. Laufleggir allt að 6,5 sm langir. Blómin allt að 6,5 mm í þvermál, hvít, í breiðum, hvelfum, lotnum, dúnhærðum skúfum, sem minna á hálfsveip og eru allt að 5×9 sm. Krónublöðin eru styttri en fræflarnir. Hýðin eru næstum hárlaus með útstæðum restum af stílum.
Uppruni
V Kína.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð runnabeð, í þyrpingar, í raðir.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum. Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur. Þrífst vel þar.