Spiraea mollifolia

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
mollifolia
Íslenskt nafn
Loðkvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
1-2 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni sem verður allt að 2 m hár. Smágreinar eru drúpandi, greinilega kantaðar, rauð-purpura, þétt silkihærðar þegar þær eru ungar.
Lýsing
Lauf 1-2 sm, oddbaugótt-öfugegglaga til aflöng, stundum dálítið tennt í oddinn, öll þétt-silkihærð. Blómin hvít, 8 mm í þvermál, í dúnhærðum sveipum sem eru 2-5 sm í þvermál. Sveipirnir eru á stuttum, laufóttum leggjum. Fræflar uppréttir og dúnhærðir.Líkur kínakvisti (S. gemmata Zab.) en auðvelt er að greina loðkvistinn frá honum á dúnhæringunni sem er alls staðar á loðkvistinum.
Uppruni
V Kína (Sichuan).
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Sem stakstæður runni, í raðir, í þyrpingar, í beð og sem óklippt limgerði.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1992 eru stórvaxnar og blómstra árlega og ein aðkeypt 1999, sem vex vel.Harðgerðar, grisja þarf reglulega.