Spiraea nipponica

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
nipponica
Ssp./var
v. tosaensis
Höfundur undirteg.
(Yatabe) Mak.
Íslenskt nafn
Sunnukvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Hreinhvítur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
1-2 m (2,5 m)
Vaxtarlag
Þéttgreinóttur runni, hálfkúlulaga, greinar stinnar.
Lýsing
Lauf 1-3×0,5-0,75 sm, öfuglensulaga til aflöng-öfugegglaga, mjókka smá saman að grunni, heilrend eða ögn bogtennt í oddinn. Blómin smærri en á aðaltegundinni og í þéttum sveip.
Uppruni
Japan (Shikoku-eyju).
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæður runni eða í beð.
Reynsla
Er ekki í Lystigarðinum en er í görðum á Akureyri, vex vel og blómstrar árlega.Meðalharðgerður, grisja þarf reglulega.