Spiraea × pyramidata

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
× pyramidata
Íslenskt nafn
Keilukvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
(S. betulifolia Pall. non auct v. lucida (Douglas ex Greene) C. Hitche x S. douglasii Hooker ssp. menziesii (Hook.) Calder & Taylor).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur til föl móbleikur.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
- 1 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, allt að 1 m hár. Smágreinar sívalar, rauðbrúnar, hárlausar.
Lýsing
Lauf 3-8 sm, oddbaugótt til aflöng snubbótt til sljóydd, efri hlutinn gróflega ein- til tvísagtenntur, hárlaus eða næstum hárlaus laufleggir allt að 5 mm langir. Blómin hvít til föl móbleik, mörg saman í keilulaga dúnhærðum eða hárlausum skúfum.
Uppruni
N Ameríka.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð trjá og runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til tvær plöntur, sem sáð var til 2004 og gróðursettar í beð 2006 og 2007.