Spiraea tomentosa

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
tomentosa
Íslenskt nafn
Hærukvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Rósbleikur til purpurableikur.
Blómgunartími
Síðsumars.
Hæð
- 1,5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, allt að 1,5 m hár, dreifir sér með neðanjarðarrenglum og myndar með því þykkni. Sprotar uppréttir, smágreinar kantaðar, brún-lóhærð þegar þau eru ung.
Lýsing
Lauf allt að 7,5×4 sm, egglaga, gróf og óreglulega sagtennt næstum alveg að grunni, dökkgræn og næstum hárlaus ofan, gulgrá lóhærð neðan. Blómin rósbleik til purpurableik í uppréttum endastæðum, pýramídalaga skúf, sem er 18×6,5 sm. Eggleg ullhærð.
Uppruni
N & M Evrópa, A Bandaríkin.
Harka
3
Heimildir
= 1, http://www.naturallandscapenursery.com
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í óklippt limgerði og víðar. Mætti nota meira í ræktun. Brúnar blómskipanirnar með fræjunum eru eftirsóknarvert skraut að hafa allan veturinn. Hærukvisturinn er greindur frá dögglingskvisti (S. douglasii) á ryðbrúnni lóhæringu á smágreinum, meira tenntum laufum og ullhærðu en ekki hárlausu egglegi.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur, sem sáð var til 2006 og gróðursettar í beð 2010 og ein sem sáð var til 2007, er enn í sólreit.
Yrki og undirteg.
Alba er með hvít blóm.