Spiraea × vanhouttei

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
× vanhouttei
Íslenskt nafn
Snækvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
- 2 m.
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, allt að 2 m hár. Sprotar grannir, langir, tígurlega bogsveigðir, brúnir og hárlausir.
Lýsing
Lauf 3-4,5×2,5-3 sm, tígullaga eða öfugegglaga, stöku sinnum greinilega 3-5 flipótt, breiðmjókkandi niður og heilrend við grunninn, efri hluti laufanna gróf-sagtenntur. Dökkgræn ofan, dálítið blágræn neðan, hárlaus. Blómin allt að 8,5 mm breið, hvít í 5 sm breiðum, sveiplíkum klösum, sem eru fjölmargir eftir greinum endilöngum, blómleggir um 1 sm langir. Bikarblöð upprétt, krónublöð kringlótt, fræflar oft ófrjóir að hlut, helmingi styttri en krónublöðin. Hýðin dálítið útstæð.
Uppruni
Garðablendingur (S. trilobata L. × S. cantoniensis Lour.).
Harka
4
Heimildir
= 1, Ásg.Svanb. 1982.
Fjölgun
Sumargæðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð, í kanta og sem stakstæður runni.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2008, er í sólreit (2014). Snækvisturinn ervða í görðum hérlendis, harðgerður og talinn skuggþolinn. Seinn til og blómstrar sjaldan. Þarf grisjun.