Spiraea wilsonii

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
wilsonii
Íslenskt nafn
Lotkvistur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hreinhvítur.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
- 2 m
Vaxtarlag
Líkur stórkvisti (S. henryi). Það er hægt að greina loðkvistinn frá stórkvistinum á hárlausum blómskipunum, en ekki dúnhærðum, Lauffellandi, uppréttur runni allt að 2 m hár. Greinarnar bogsveigðar, smágreinar matt-purpura, dúnhærðar í byrjun.
Lýsing
Lauf 2-5,5 sm, sporbaugótt til öfugegglaga eða aflöng, snubbótt eða ydd, tennt eða heilrend, fleyglaga við grunninn, mattgræn, dúnhærð ofan, grágræn og lang(hrokkin)hærð neðan, einkum á æðastrengjunum. Blóm allt að 6 mm í þvermál, hreinhvít, á stuttum, laufóttum sprotum. Bikar er hárlaus. Krónublöðin eru jafn löng og fræflarnir. Aldin útstæð, lítið eitt langhærð á saumi á framhlið.
Uppruni
S & V Kína.
Harka
Z5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í þyrpingar. Líkur bogakvisti (S. veitchii Hemsl.).
Reynsla
Ein planta með þessu nafni er til í Lystigarðinum. Til hennar var sáð 1998, kelur mismikið, vex stundum upp úr rótinni. Haustlitir eru fallegir, appelsínugulir. Blómstraði 2011.