Symphytum caucasicum

Ættkvísl
Symphytum
Nafn
caucasicum
Íslenskt nafn
Fjallavalurt
Ætt
Munablómaætt (Boraginaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Skærblár.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
40-60 sm
Vaxtarlag
Uppréttur fjölæringur, stinnir, marggreinóttir stönglar, 40-60 sm, vaxa upp af útbreiddum, greinóttum jarðstönglum.
Lýsing
Stönglar og lauf með fíngerð dúnhár. Grunnlauf í blaðhvirfingum, aflöng til egglaga, mjókka niður í vængjaða leggi og eru að mestu fallin þegar plantan blómgast. Neðri stöngullauf þverstýfð eða bogadregin við grunninn, um það bil 20 x 4-6 sm. Efri lauf egglensulaga, mjókka að grunni og eru nokkuð legghlaupin, um 15 x 0,6 sm.Blóm í pöruðum kvíslskúfum. Bikar 4-6 sm, bikarflipar ¼-1/3 af lengd bikarsins. Flipar uppréttir, breiðlandlaga, snubbóttir, stækka við fræþroskann. Króna 1,3-1,7 sm, blá, trektlaga með mjóar þríhyrndar tennur. Fræflar með frjóhnappa jafnlanga og frjóþræðirnir, ginleppar bandlaga, snubbóttir, jafnlangir og fræflarnir. Fræ(hnetur) gulhvítar, ögn hnúskóttar.
Uppruni
Kákasus.
Harka
5
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti sáning að vori, rótargræðlingar.
Notkun/nytjar
Fjölær beð, í skógarbotn, undir tré og runna.
Reynsla
Harðgerð planta. Í E3 frá 1980.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki eru í ræktun erlendis.