Symphytum officinale

Ættkvísl
Symphytum
Nafn
officinale
Íslenskt nafn
Valurt
Ætt
Munablómaætt (Boraginaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Fölrjómagul, hreinhvít, fagurrauð eða purpurarauð.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
60-100 sm (-150 sm)
Vaxtarlag
Uppréttur, greinóttur fjölæringur, allt að 150 m hár, vex upp af þykkum, spólulaga, lárétturm jarðstöngli. Stönglar grófir, með þétt þornhár og stríhár.
Lýsing
Neðri lauf stór eða allt að 25 sm, egglaga-lensulaga, langydd og legg. Efri lauf aflöng-lensulaga, legglaus. Vængir hlaupa niður legginn geta náð niður fyrir næsta lið. Margblóma kvíslskúfur, drjúpandi í fyrstu en síðar uppréttur og myndar blómskipun sem líkist punti. Blómleggir 5-10 mm með stutt, útstæð þornhár. Bikar 8-13 mm, tennur lensulaga, ydd, 2-3 x lengri en pípan. Króna 8-20 mm, fölrjómagul, hreinhvít, fagurrauð eða rauðpurpura, silkihærð með breiða, þríhyrnda, aftursveigða krónuflipa. Fræflar með frjóhnappana lengri en frjóþræðina og tengslin ná upp fyrir frjóhnappana. Ginleppar lítið lengri en breið þríhyrnings-lenslaga frjóhnappana. Fræ (hnetur) svartar, sléttar og glansandi.
Uppruni
Víða í Evrópu og tempraða hluta Asíu.
Harka
5
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, sáning að vori, rótargræðlingar.
Notkun/nytjar
Skógarbotn, undir tré og runna.
Reynsla
Harðgerð planta sem og hefur reynst vel í Lystigarðinum. Smá blóm, of grófgerð og stór til þess að geta talist skrautplanta.
Yrki og undirteg.
'Coccineum' er með rauðum blómum er lægri en aðaltegundin; er betri garðplanta. Sama má segja um 'Variegatum' og 'Bohemicum'.