Syringa emodi

Ættkvísl
Syringa
Nafn
emodi
Íslenskt nafn
Höfgasýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Föl-lillalitur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
-3 m
Vaxtarlag
Uppréttur kröftugur runni, greinar mjög uppréttar, sverar, ólívubrúnar, vörtóttar.
Lýsing
Lauffellandi, kröftugur, uppréttur runni, allt að 3 m hár. Greinarnar eru áberandi uppréttar, sverar, ólífubrúnar, vörtóttar. Lauf allt að 15 sm löng. Aflöng-oddbaugótt, dökkgræn ofan, fölgrágræn neðan, hárlaus. Blómin í sívölum klösum ,allt að 15 sm löngum endastæðum, föl lillalit, illa lyktandi. Krónan 5 mm, bikar bjöllulaga, lítið flipóttir, fliparnir baksveigðir, fræflar ná út úr blóminu. úr blóminu.
Uppruni
Afghanistan, Himalaja.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Sumargræðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, stakstæð, beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til fjórar plöntur undir þessu nafni sem sáð var til 1980 og 1981 og gróðursettar í beð 1987, 1988 og 1990. Þrífast vel, hafa kalið lítið sem ekkert hin síðari ár, blómstra árlega. Harðgerður runni sem hefur reynst vel hérlendis.
Yrki og undirteg.
'Variegata' með flikrótt blöð.