Syringa × henryi

Ættkvísl
Syringa
Nafn
× henryi
Íslenskt nafn
Kóngasýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Föl blápurpura til rauður.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
4-5 m
Vaxtarlag
Stórvaxinn, uppréttur runni.
Lýsing
Lauffellandi, uppréttur runni, allt að 5 m hár, sem minnir á S. josikaea, að flestu leyti. Blómin breið, föl blápurpura til rauð, krónupípan trektlaga, klasinn stærri og lotnari en hjá foreldrunum, Laufin ljósari en hjá S. josikea.
Uppruni
Garðablendingur (S. josikaea Jacq. f. ex Rchb. × S. villosa Vahl.)
Sjúkdómar
Runninn hefur mikið mótstöðuafl gegna sjúkdómum og meindýrum.
Harka
4
Heimildir
1, http://mosaid.org, http://personal.inet.fi
Fjölgun
Yrkjunum verður aðeins fjölgað með græðlingum, sumargræðlingum, erfiðara er að nota vetrargræðlinga. Ágræðsla er líka möguleg. Plöntur upp af fræi eru aðeins notaðar sem ágræðslutré/runni.
Notkun/nytjar
Stórir runnar sem þurfa gott rými til að ná góðum þroska. Stakir eða í þyrpingum.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur, sem sáð var til 1991 og tvær sem sáð var til 1998 og plantað í beð 2000 og 2004. Þrífast vel, ekkert kal skráð, blómstra árlega.