Syringa × henryi

Ættkvísl
Syringa
Nafn
× henryi
Yrki form
'Julia'
Höf.
Wickman 1993
Íslenskt nafn
Kóngasýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
- 3 m
Lýsing
Lauffellandi runni, allt að 3 m hár. Fallegt og gróskumikið yrki með stór, falleg, bleik blóm.
Uppruni
Yrki frá Finnlandi.
Sjúkdómar
Runninn hefur mikið mótstöðuafl gegna sjúkdómum og meindýrum.
Harka
4
Heimildir
1, http://www.friendsofhefarm.ca, http://www.sarkanperennataimisto.fi, http://personal.inet.fi
Fjölgun
Yrkjunum verður aðeins fjölgað með græðlingum, sumargræðlingum, erfiðara er að nota vetrargræðlinga. Ágræðsla er líka möguleg. Plöntur upp af fræi eru aðeins notaðar sem ágræðslutré/runni.
Notkun/nytjar
Stórir runnar sem þurfa gott rými til að ná góðum þroska. Stakir eða í þyrpingum. Hægt að rækta sem lítið blómstrandi tré.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein aðkeypt planta sem gróðursett var í beð 2006. Kelur ekkert og blómstrar árlega.