Syringa × josiflexa

Ættkvísl
Syringa
Nafn
× josiflexa
Yrki form
Veera
Höf.
MTT (K-0719) Finnland.
Íslenskt nafn
Sveigsýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól, lítill skuggi.
Blómalitur
Dökkbleikur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
3-5 m
Lýsing
Lauffellandi runni, 3-5 m hár með dökkgræn lauf og stórkostlega falleg, dökkbleik blóm.
Uppruni
Garðablendingur (S. josikaea Jacq. f. ex Rchb. × S. komarowii Schneid. ssp. reflexa Schneid.).
Heimildir
http://soimalainentaimi.fi, http://www.viherpiste.fi
Fjölgun
Sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Stakir runnar eða í þyrpingar, plantið með meira en 1 m millibili.Klippið með varúð þar sem knúbbarnir eru í endum gömlu greinanna. Gamlir runnar eru grisjaðir með því að klippa burt gamlar og veikbyggðar greinar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein aðfengin planta sem gróðursett var 2009. Stutt reynsla enn sem komið er.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGA: Nýtt yrki frá Finnlandi 2007.