Syringa josikaea

Ættkvísl
Syringa
Nafn
josikaea
Íslenskt nafn
Gljásýrena (daunsýrena)
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Djúpfjólublár.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
3-4 m
Vaxtarlag
Stinnar, uppréttar, hárlausar greinar.
Lýsing
Lauffellandi, uppréttur runni allt að 4 m hár. Greinar grófar, vörtóttar. Lauf leðurkennd, allt að 12 sm löng, oddbaugótt, randhærð, glansandi ofan, bláleit neðan æðastrengir dúnhærðir á neðra borði. Blómin í mjóum, uppréttum klösum, allt að 15 sm löngum, dúnhærðum. Blómin mjó, djúpfjólublá, krónan allt að 15 með framréttum flipum.
Uppruni
Ungverjaland, Galisía.
Harka
5
Heimildir
1, http://personal.inet.fi
Fjölgun
Vetrargræðlingar (inni að vori), sumargræðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Í beð, þyrpingar, stakstæður runni, óklippt limgerði.Æskilegt er að fjarlægja blómklasa eftir blómgun, runninn snyrtur árlega.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til tvær plöntur undir þessu nafni sem sáð var til 1082 og keypt sem planta 2007. Þrífast vel, hafa kalið lítið sem ekkert hin síðari ár, blómstra árlega.Harðgerður runni.
Yrki og undirteg.
'Rosea' blóm bleik.'Rubra' blóm fjólublá með rauðu ívafi.