Syringa komarowii

Ættkvísl
Syringa
Nafn
komarowii
Ssp./var
ssp. reflexa
Höfundur undirteg.
(C.K.Schneid.) P.S.Green & M.C.Chang
Íslenskt nafn
Næfursýrena / Bogasýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Samheiti
S. reflexa Schneider
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikrauður.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
3-4 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, 3-4 m hár eða hærri. Greinar ljósbrúnar, vörtóttar, ögn hærðar í fyrstu.
Lýsing
Lauf egglaga-aflöng til dálítið oddbaugótt-lensulaga 6-16 × 2,5-8 sm löng, mjókka til beggja enda, langydd, hárlaus ofan, dálítið hærð á neðra borði á æðastrengjunum, Grunnur dálítið snubbóttur til (oftast) yddur, oddur breiðyddur til nokkuð odddreginn. Blómskipunin endastæð, meira eða minna upprétt til drúpandi eða hangandi, næstum pýramídalaga eða sívöl. 7-20 sm, hárlaus eða ögn hærð. Bikar 1,5-2 mm, tennur engar eða ógreinilegar, oftast hárlaus. Krónupípa trektlaga, purpurarauð til bleikrauð, hvít á innra borði, 9-11 mm, flipar 1-2 mm, nokkuð uppréttir til útstæðir í rétt horn. Fræflar ná ekki fram úr blóminu. Hýði sívöl, aflöng slétt eða með smáar korkbletti. &
Uppruni
NV Kína.
Harka
H1
Heimildir
2
Fjölgun
Sumargræðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Stakir runnar, í þyrpingar, í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til fjórar gamlar (frá því fyrir 1970) plöntur undir þessu nafni og plöntur sem sáð var til 1983, 1986, 1989 og 1996. Þær þrífast vel og hafa ekkert kalið hin síðari ár, blómstra árlega.
Yrki og undirteg.
ssp. reflexa: Blómskipunin dálítið pýramídalaga, stundum slitrótt, 10-20 sm löng. Krónan bleikrauð, flipar útstæðir í rétt horn. &
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Undirtegundin er tré eða runni, harðgerðir á Bretlandseyjum.