Syringa meyeri

Ættkvísl
Syringa
Nafn
meyeri
Íslenskt nafn
Huldusýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Blá-bleikur eða gráfjólublá-bleikur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
- 2 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, allt að 2 m hár, þéttvaxinn.
Lýsing
Lauf breið-egglaga til (oftast) meira eða minna kringlótt, 1-3 × 1,3 sm, með par af æðastrengjum við grunninn sitt hvoru megin við miðstrenginn, hárlaus nema við grunninn á aðalstrengnum á neðra borði. Grunnur bogadreginn til næstum hjartalaga, oddur stutt-odddreginn. Blómskipanirnar vaxa frá pari af hliðarbrumum en greinilega frá endastæðum brumum. Þær vaxa stundum líka frá hliðarbrumum neðar á stilknum. Blómskipanirnar eru 3-9 sm langar, nokkuð þéttblóma, dúnhærðar. Blómin ilmandi. Bikar um 1 mm langur, heilrendur eða með ógreinilegar tennur, hárlaus til fín-dúnhærður. Króna blá-bleik eða gráfjólublá-bleik. Krónupípa ögn trektlaga, 6-8 mm, krónuflipar 1,5-2 mm, verða baksveigðir. Frjóhnappar eru inni í krónupípunni eða í pípuopinu. Hýðin eru sívöl-sporvala, um 1 sm löng með dreifðum korkfrumum.
Uppruni
N Kína.
Harka
H1
Heimildir
2, http://davesgarden.com
Fjölgun
Sumargræðlingar, skipting á rótarhnaus, sáning t.d. utandyra að haustinu í sólreit.
Notkun/nytjar
Í beð, þyrpingar, sem stakstæður runni.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum, en hefur verið sáð (2010).
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Hægt að safna fræi ef plantan fá að þroska fræ fram eftir haust.