Syringa oblata

Ættkvísl
Syringa
Nafn
oblata
Ssp./var
ssp. dilatata
Höfundur undirteg.
( Nakai ) P.S.Green & M.C.Chang
Íslenskt nafn
Klaustursýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Samheiti
Syringa oblata var. dilatata (Nakai) Rehder
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Purpurafjólublár.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
- 5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, stundum opinn og gisgreinóttur, allt að 5 m hár.
Lýsing
Lauf hjartalaga til breið-hjartalaga, 2,5-7× 2,5-8 sm, hárlaus, með eitt stakt par af æðastrengjum allra neðst við aðalstrenginn, grunnur oftast meira eða minna hjartalaga, stundum þverstýfður, oddur stutt-odddregin. Laufleggir 1,5-5 sm. Blómskipanirnar eru skúfar sem vaxa greinilega frá pari af hliðaendabrumum, 6-15 sm langar. Bikar 1,5-2,5 mm, tennur hvassyddar. Króna lillalit til rauðrófupurpura (eða hvít), krónupípa 6-4 mm, flipar 4-8 mm, breið-oddbaugóttir, bogadregnir, útstæðir. Fræflar inni í eða í opi krónupípunnar. Hýði sívöl-aflöng, 1-2 mm, ydd.
Uppruni
Kórea.
Harka
H1
Heimildir
2,7
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, þyrpingar, sem stakstæðir runnar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1995 og gróðursett í beð 2000. Þær þrífast vel, kala lítið sem ekkert, blómstra árlega.
Yrki og undirteg.
ssp. dilatata (Nakai) P.S.Green & M.C.Chang. Stundum opinn, gisgreinóttur runni. Laufin oftast dálítið mjórri en þau eru löng, hárlaus, 3-7×2,5-6 sm, (geta orðið allt að 12 sm löng), grunnur þverstýfður til bogaformaður. Laufleggir 2-3 sm. Blómskipunin opin, gisin. Krónan purpurafjólublá. Krónupípan 1,1-1,4 sm, flipar 5-8 mm. εÞessi undirtegund er aðgreind frá aðaltegundinni á laufunum og gisnari vexti. Purpurafjólublár.