Syringa oblata

Ættkvísl
Syringa
Nafn
oblata
Ssp./var
ssp. oblata
Íslenskt nafn
Klaustursýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Samheiti
S. oblata v. giraldii (Lemoine) Rehder.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Lillalitur til rauðrófupurpura.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
- 5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni allt að 5 m hár.
Lýsing
Lauf hjartalaga til breið-hjartalaga, 2,5-7× 2,5-8 sm, hárlaus, með eitt stakt par af æðastrengjum allra neðst við aðalstrenginn, grunnur oftast meira eða minna hjartalaga, stundum þverstýfður, oddur stutt-odddregin. Laufleggir 1,5-5 sm. Blómskipanirnar eru skúfar sem vaxa greinilega frá pari af hliðaendabrumum, 6-15 sm langar. Bikar 1,5-2,5 mm, tennur hvassyddar. Króna lillalit til rauðrófupurpura (eða hvít), krónupípa 6-4 mm, flipar 4-8 mm, breið-oddbaugóttir, bogadregnir, útstæðir. Fræflar inni í eða í opi krónupípunnar. Hýði sívöl-aflöng, 1-2 mm, ydd.
Uppruni
N Kína.
Harka
H1
Heimildir
2
Fjölgun
Sumargræðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Í beð, þyrpingar, sem stakstæðir runnar.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum.
Yrki og undirteg.
ssp. oblata. Nokkuð uppréttur runni. Laufin oftast ögn breiðari en þau eru löng, 2,5-7×3-8 sm, grunnur þverstýfður til (oftast) dálítið hjartalaga, laufleggir 1,5-2,5 sm langir. Blómskipunin fremur þéttblóma. Krónupípa 6-11 mm, flipar 4-6 mm. ε