Syringa × prestoniae

Ættkvísl
Syringa
Nafn
× prestoniae
Íslenskt nafn
Fagursýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Rósbleikur-hvítur til djúp lillalitur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
1,5-4m
Vaxtarlag
Grófur, uppréttur runni.
Lýsing
Hér er um að ræða hóp af blendingum sem eru forverar margra yrkja. Laufin eru mjög lík laufa dúnsýrenunnar (S. villosa). Blómin eru rósbleik-hvít til djúp lillalit í þéttum, drúpandi klössum.&
Uppruni
Garðablendingar (S. komarowii Schneid. × S. villosa Vahl.) .
Sjúkdómar
Runninn hefur mikið mótstöðuafl gegna sjúkdómum og meindýrum
Harka
4
Heimildir
1, http://mosaid.org
Fjölgun
Yrkjunum verður aðeins fjölgað með græðlingum, sumargræðlingum, erfiðara er að nota vetrargræðlinga. Ágræðsla er líka möguleg. Plöntur upp af fræi eru aðeins notaðar sem ágræðslutré/runni.
Notkun/nytjar
Stórir runnar sem þurfa gott rými til að ná góðum þroska. Stakir eða í þyrpingum.
Reynsla
Ýmis yrki hafa reynst vel bæði norðanlands og sunnan.
Yrki og undirteg.
Af yrkjum sem Dr. Isabella Preston valdi til framleiðslu á sínum tíma (voru orðin yfir 100 alls) og þrífast vel hérlendis má nefna 'Coral' sem er líklega besta bleika yrkið, 'Desdemona' fyrir blómgun eru blómin fjólublá, lýsast þegar þau opnast, 'Elinor' ljósfjólurauð að innan en rauðfjólublá að utan og 'Isabella' með ljóslilla blóm.