Syringa × prestoniae

Ættkvísl
Syringa
Nafn
× prestoniae
Yrki form
'Donald Wyman'
Höf.
Skinner 1932, Kanada.
Íslenskt nafn
Fagursýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Sumargænn runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Blápurpura til gráfjólublá með purpura slikju.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
1,8-2,4 m
Vaxtarlag
Stór, uppréttur runni.
Lýsing
Lauffellandi, kröftugur, þéttur og uppréttur runni, 1,8-2,4 m hár og 1,2-1,8 m breiður. Laufin milligræn, slétt, glansandi með greinilega æðastrengi. Blómin ilmandi, blápurpura til gráfjólublá með purpura slikju í stórum, pýramídalaga klösum. Klasar um 15 sm langir og 12 sm breiðir, þéttir. Mjög fallegt yrki.
Uppruni
Garðauppruni (S. komarowii ssp. reflexa × S. villosa).
Sjúkdómar
Runninn hefur mikið mótstöðuafl gegna sjúkdómum og meindýrum.
Harka
4
Heimildir
1,7, http://www.friendsofhefarm.ca, http://davesgarden.com, http://mosaid.org
Fjölgun
Yrkjunum verður aðeins fjölgað með græðlingum, sumargræðlingum, erfiðara er að nota vetrargræðlinga, líla er hægt skipta rótarhnausnum. Ágræðsla er möguleg. Plöntur upp af fræi eru aðeins notaðar sem ágræðslutré/runni. Blómin góð til afskurðar.
Notkun/nytjar
Stórir runnar sem þurfa gott rými til að ná góðum þroska, stakir eða í þyrpingum.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein, aðkeypt planta sem var gróðursett í beð 2004. Þrífst vel, ekkert kal skráð, blómstrar árlega.