Syringa × prestoniae

Ættkvísl
Syringa
Nafn
× prestoniae
Yrki form
'Isabella'
Íslenskt nafn
Fagursýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Lillarauður, ljósari innan,
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
3-4 m
Vaxtarlag
Kröftugur, uppréttur runni.
Lýsing
Kröftugur, lauffellandi runni, 3-4 m hár og álíka breiður, með dökkgræn lauf. Blómin einföld, lillarauð, ljósari innan, ilma lítið eitt. Stórir klasar, allt að 27 sm langir, 20 sm breiðir, þéttblóma. Eitt besta yrkið í prestoniae-grúppunni. Ekki skriðul.Hægt að rækta sem lítið, blómstrandi tré og er talin vera sú sýrena sem best er að rækta sem tré.
Uppruni
Garðauppruni (S. komarowii ssp. reflexa × S. villosa).
Sjúkdómar
Runninn hefur mikið mótstöðuafl gegna sjúkdómum og meindýrum.
Harka
4
Heimildir
1, http://www.lotth.com, http://www.friendsofhefarm.ca, http://mosaid.org
Fjölgun
Yrkjunum verður aðeins fjölgað með græðlingum, sumargræðlingum, erfiðara er að nota vetrargræðlinga. Ágræðsla er líka möguleg. Plöntur upp af fræi eru aðeins notaðar sem ágræðslutré/runni.
Notkun/nytjar
Stórir runnar sem þurfa gott rými til að ná góðum þroska, stakir eða í þyrpingum.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein, aðkeypt planta sem var gróðursett í beð 1981 og önnur eldri. Báðar þrífast vel, hafa næstum ekkert kalið, (nema ögn allra fyrstu árin) eru orðnar stórir og miklir runnar, sem blómstra árlega.