Syringa × prestoniae

Ættkvísl
Syringa
Nafn
× prestoniae
Yrki form
'Royalty'
Íslenskt nafn
Fagursýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Blálilla (lýsist með aldrinum).
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
2-3 m
Vaxtarlag
Stórvaxinn og þéttvaxinn, uppréttur runni.
Lýsing
Lauffellandi, þéttvaxinn runni, 2 (2,4-3) m hár og 3,6-4,7 m breiður, laufin slétt. Knúbbar djúpfjólubláir, útsprungin blóm eru blálilla lýsast með aldrinum en er þó með dekkstu blóm allar yrkjanna. Klasar allt að 17 sm langir, 10 sm breiðir, mjög þéttblóma. Blómin stór, ilmandi. &
Uppruni
Garðauppruni (S. komarowii ssp. reflexa × S. villosa).
Sjúkdómar
Runninn hefur mikið mótstöðuafl gegna sjúkdómum og meindýrum.
Harka
4
Heimildir
1, http://davesgarden.com, http://personal.inet.fi, http://www.friendsofhefarm.ca, http://mosaid.org
Fjölgun
Yrkjunum verður aðeins fjölgað með græðlingum, sumargræðlingum, erfiðara er að nota vetrargræðlinga. Ágræðsla er líka möguleg. Plöntur upp af fræi eru aðeins notaðar sem ágræðslutré/runni. Plantan er á eigin rót. Hægt að rækta hana sem lítið, blómstrandi tré.
Notkun/nytjar
Stórir runnar sem þurfa gott rými til að ná góðum þroska, stakir eða í þyrpingum.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein, aðkeypt planta sem var gróðursett í beð 1985. Þrífst vel, næstum ekkert kal, enda orðin stór og mikill runni sem blómstrar árlega.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Runninn var lengi ranglega talinn tilheyra S. josikaea.