Syringa pubescens

Ættkvísl
Syringa
Nafn
pubescens
Íslenskt nafn
Flossýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Lillalitur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
- 2 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur og útbreiddur runni allt að 2 m hár. Greinar með gárur langsum, grannar, hárlausar, nývöxtur rauð-grænn.
Lýsing
Lauf allt að 7 sm löng, egglaga, verða snögglega odddregin. Dökkgræn, glansandi á efra borði, gráloðin á neðra borði, jaðrar randhærðir. Blóm mörg, lillalit, ilma mikið, í allt að 12 sm löngum skúfum, gin hvítleitt, flipar innsveigðir, fölna fljótt. Krónupípa mjó, allt að 1,5 sm löng.
Uppruni
M Kína.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í þyrpingar, sem stakur runni.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni sem sáð var til 2001 og gróðursettar 2004 og 2011. Þrífast vel, ekkert kal skráð.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Þetta er sú sýrena sem blómstrar einna fyrst að sumrinu.