Syringa pubescens

Ættkvísl
Syringa
Nafn
pubescens
Ssp./var
ssp. microphylla
Höfundur undirteg.
(Diels.) Chang. & Chen.
Íslenskt nafn
Flossýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Samheiti
S. microphylla Diels., S.potaninii Schneider.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fjólublá-purpura, purpura-lilla til bleikur, stundum hvítur innan.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
5-6 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, allt að 6 m hár, stór og mikill.
Lýsing
Laufin lensulaga til egglaga, breiðegglaga eða oddbaugótt, 2-9×1-5 sm, hárlaus til dúnhærð, grunnur yddur til bogadreginn, oddur meira eða minna snubbóttur til (oftast) meira eða minna odddreginn. Blómskipanirnar vaxa frá pari af hliðabrumum, sem augljóslega eru endabrum. Blómskipanirnar eru skúfar, 4-12 sm langar, stundum jafn breiðar, hárlausar, hærðar eða dúnhærðar. Bikar 1-1,5 mm, tennur breið-þríhyrndar eða ógreinilegar, hárlausar eða dúnhærðar. Krónan fjólublá-purpura, purpura-lilla til bleik, stundum hvít innan. Krónupípan því sem næstum sívöl, 5-10 mm, flipar 2-4 mm, oftast dálítið baksveigðir. Fræflarnir inni í pípunni eða í pípumunninum. Hýði sívöl eða oddbaugótt-aflöng, 1-2 sm.
Uppruni
M Kína.
Harka
H1
Heimildir
2
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í þyrpingar, sem stakir runnar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2001 og gróðursett í beð 2004. Þrífst vel, ekkert kal.