Syringa reticulata

Ættkvísl
Syringa
Nafn
reticulata
Ssp./var
ssp. pekinensis
Höfundur undirteg.
(Ruprecht) Green & Chang
Íslenskt nafn
Drekasýrena / Spegilsýrena
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Samheiti
S. pekinensis Ruprecht.
Lífsform
Lauffellandi runni eða lítið tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rjómahvítur.
Blómgunartími
Júlí
Hæð
Allt að 5 m eða hærri.
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni eða lítið tré allt að 5 sm hátt eða hærra.
Lýsing
Lauf lensulaga til egglaga eða breiðegglaga, 4-8×2-5 sm, hárlaus, grunnur yddur til bogadreginn. Laufleggir 1,5-3 sm langir, grannir. Blómskipunin hárlaus. Krónupípa 1,5 mm löng, flipar 2 mm langir. Hýði 1-2 sm, toppur yddur.
Uppruni
N Kína. Mongólía.
Harka
H1
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í þyrpingar, sem stakstæður runni eða tré.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum en hefur verið sáð (2010).