Syringa vulgaris

Ættkvísl
Syringa
Nafn
vulgaris
Yrki form
General Pershing
Höf.
(Lemoine 1924).
Íslenskt nafn
Dísarunni (Garðasýrena)
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Lilla-purpura.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
3 m
Vaxtarhraði
Vex meðalhratt við bestu aðstæður, getur lifað í um 30 ár.
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, allt að 3 m hár og að minnsta kosti 2 m breiður. Runninn er marggreindur, hvelfdur í vextinum, á það til að mynda rótarskot, er ber neðantil, það er um það bil neðstu 60 sm.
Lýsing
Fallegur sumarblómstrandi runni. Knúbbar dökkrauðir, ilmandi, lilla-purpura blóm með skeljableika slikju og hvítar rákir í uppréttum skúfum/klösum. Klasar mjög langir, með langar hliðargreinar neðst, þéttir. Blómin einföld, stundum tvöföld og aðeins með fáeina odda á pípuendanum, ósammiðja, oddarnir mjóir eða beiðir, mjög innundnir. Laufið blágrænt allt sumarið, laufin hjartalaga, ekki með neina sérlega fallega haustliti. Börkurinn grár og sléttur.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
7, http://www.qscaping.com
Fjölgun
Árangursríkast er að taka græðlinga af öllum sýrenu-yrkjum strax að blómgun lokinni. Þá rætast græðlingarnir best.
Notkun/nytjar
Stakur, í þyrpingar, í limgerði.Klippið dauð blóm af runnanum að blómgun lokinni, en gætið þess að skerða ekki nývöxtinn/ársprotana.Má ekki verða of aðþrengdur, loft þarf að leika um runnannBlómin góð til afskurðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er ein aðkeypt planta sem var gróðursett 1988. Þrífst sæmilega, ekkert kal, blóm af og til.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Þetta er franskur blendingur, valið yrki úr plöntum, sem ekki eru upprunalega frá N Ameríku.