Taxus x media

Ættkvísl
Taxus
Nafn
x media
Íslenskt nafn
Garðaýr
Ætt
Ýviðarætt (Taxaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Hálfskuggi (sól).
Blómalitur
kvk grænt ber.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
1-5 m ?
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Blendingur T. baccata × T. cuspidata, sem líkist báðum foreldrunum. Pyramidalaga, breiður runni með fremur útstæðar greinar, kröftugri en T. baccata. Ársprotar ólífugrænir, oft rauðleitir sólarmegin, eldri greinar ólfíugrænar oft með rauðleitri efri hlið.
Lýsing
Brumhlífar snubbóttar, dálítið kjalaðar. Barrnálar líkar og á T. cuspidata en samt alltaf greinilegra tvískiptar og oft láréttar og útbreiddar, þar að auki aðgreindar á ólífugrænum greinum, þær líkjast meira nálum Taxus cuspidata og er aðgreindur frá T. baccata á stinnari og breiðari barrnálum með minni odd, meira áberandi miðtaug og nálapúða sem breikkar snögglega í barrlegginn/lauflegginn. Blómin sitja í blaðöxlum á fyrra árs greinum, einkynja ♂ blóm sem hnattlaga þyrping af frævlum, ♀ blómið er eins og lítið grænt ber, sérbýlisplanta, eitt fræ er í hverjum berköngli og er umlukið rauðri frækápu.
Uppruni
Garðablendingur.
Harka
5
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sumargræðlingar í ágúst-september.
Notkun/nytjar
Í norður og austur jaðri beða.
Reynsla
Hefur þrifist vel í Lystigarðinum og kelur þar lítið sem ekkert.
Yrki og undirteg.
Fjöldi yrkja í ræktun.